1 Thessalonians 5

1En um tíma og tíðir hafið þér, bræður, ekki þörf á að yður sé skrifað. 2Þér vitið það sjálfir gjörla, að dagur Drottins kemur sem þjófur á nóttu. 3Þegar menn segja: ,,Friður og engin hætta``, þá kemur snögglega tortíming yfir þá, eins og jóðsótt yfir þungaða konu. Og þeir munu alls ekki undan komast. 4En þér, bræður, eruð ekki í myrkri, svo að dagurinn geti komið yfir yður sem þjófur. 5Þér eruð allir synir ljóssins og synir dagsins. Vér heyrum ekki nóttunni til né myrkrinu. 6Vér skulum þess vegna ekki sofa eins og aðrir, heldur vökum og verum algáðir. 7Þeir, sem sofa, sofa á nóttunni og þeir, sem drekka sig drukkna, drekka á nóttunni. 8En vér, sem heyrum deginum til, skulum vera algáðir, klæddir brynju trúar og kærleika og von hjálpræðis sem hjálmi. 9Guð hefur ekki ætlað oss til að verða reiðinni að bráð, heldur til að öðlast sáluhjálp fyrir Drottin vorn Jesú Krist, 10sem dó fyrir oss, til þess að vér mættum lifa með honum, hvort sem vér vökum eða sofum. 11Áminnið því hver annan og uppbyggið hver annan, eins og þér og gjörið. 12Vér biðjum yður, bræður, að sýna þeim viðurkenningu, sem erfiða á meðal yðar og veita yður forstöðu í Drottni og áminna yður. 13Auðsýnið þeim sérstaka virðingu og kærleika fyrir verk þeirra. Lifið í friði yðar á milli. 14Vér áminnum yður, bræður: Vandið um við þá, sem óreglusamir eru, hughreystið ístöðulitla, takið að yður þá, sem óstyrkir eru, verið langlyndir við alla. 15Gætið þess, að enginn gjaldi neinum illt með illu, en keppið ávallt eftir hinu góða, bæði hver við annan og við alla aðra. 16Verið ætíð glaðir. 17Biðjið án afláts. 18Þakkið alla hluti, því að það er vilji Guðs með yður í Kristi Jesú. 19Slökkvið ekki andann. 20Fyrirlítið ekki spádómsorð. 21Prófið allt, haldið því, sem gott er. 22En forðist allt illt, í hvaða mynd sem er. 23En sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheil og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists. 24Trúr er sá, er yður kallar, hann mun koma þessu til leiðar. 25Bræður, biðjið fyrir oss! 26Heilsið öllum bræðrunum með heilögum kossi. 27Ég bið og brýni yður í Drottins nafni, að þér látið lesa bréf þetta upp fyrir öllum bræðrunum.
Copyright information for Icelandic